Nokia E65 - Þráðlausar staðarnetstengingar

background image

Þráðlausar staðarnetstengingar

Mikilvægt: Alltaf skal virkja eina af tiltækum dulkóðunaraðferðum til að auka öryggi þráðlausrar staðarnetstengingar.

Notkun dulkóðunar dregur úr hættunni á því að einhver fái aðgang að gögnunum þínum án heimildar.

Til að nota þráðlaust staðarnet verðurðu að búa til netaðgangsstað (IAP). Aðgangsstaðurinn er notaður fyrir forrit sem þurfa

að tengjast við internetið. Tengingu við þráðlaust staðarnet er komið á þegar þú kemur á gagnatengingu með því að nota

internetaðgangsstað fyrir þráðlaust staðarnet. Þegar þú lokar gagnatengingunni er þráðlausu staðarnetstengingunni einnig

lokað. Einnig er hægt að loka tengingunni handvirkt.

Sjá „Stjórnandi tenginga“, bls. 62.

Þú getur notað þráðlaust staðarnet meðan á símtali stendur eða meðan pakkagagnatenging er virk. Aðeins er hægt að tengjast

við eitt tæki fyrir þráðlausan staðarnetsaðgangsstað í einu en nokkur forrit geta notað sama netaðgangsstaðinn.
Þegar

Ótengdur

sniðið er virkt geturðu samt notað þráðlaust staðarnet (ef það er til staðar). Mundu að uppfylla allar viðeigandi

öryggiskröfur þegar þráðlausu staðarnetssambandi er komið á og það notað.
Ef þú færir tækið til innan þráðlauss staðarnets og úr færi við aðgangsstað þess finnur reikiaðgerðin sjálfkrafa nýjan aðgangstað

fyrir tækið þitt innan sama nets. Á meðan þú ert í færi við aðgangsstaði sem tilheyra sama neti getur tækið þitt haldið

tengingunni við það net.

Ábending: Til að kanna MAC-vistfang (media access control) sem ber kennsl á tækið þitt, t.d. til að stilla MAC-vistfang

tækisins þíns á beini fyrir þráðlaust staðarnet, skaltu slá inn *#62209526# í tækið. MAC-vistfangið sést á skjánum.