Gögn samstillt við annað tæki
Hafirðu áður flutt gögn í Nokia E65 tækið þitt og hitt tækið styður samstillingu geturðu notað
Flutningur
til að halda þessum
tækjum uppfærðum.
1. Veldu
Símar
og ýttu á skruntakkann.
2. Flettu að tækinu sem þú flytur gögn frá og ýttu á skruntakkann.
3. Veldu
Samstilla
og ýttu á skruntakkann. Tækin hefja samstillingu og nota sömu gerð tengingar og þú valdir þegar þú fluttir
gögnin í upphafi. Einungis eru samstillt þau gögn sem þú valdir í upphafi til gagnaflutninga.
Til að breyta stillingum fyrir gagnaflutning og samstillingu skaltu velja
Samstilla
, fletta að tækinu, ýta á skruntakkann og velja
Breyta
.