Flýtiritun
1. Til að virkja flýtiritun skaltu ýta á ritfærslutakkann og velja
Kveikja á flýtiritun
. Þá verður flýtiritun virk í öllum ritlum í tækinu.
vísirinn sést efst til hægri á skjánum þegar þú slærð inn texta með flýtiritun.
2. Ýttu á talnatakka 2 til 9 til að slá inn orðið sem þú vilt. Ýttu aðeins einu sinni á hvern takka fyrir hvern staf.
3. Þegar þú klárar að skrifa orðið og það er rétt skaltu ýta á stýripinnann til að staðfesta það, eða á 0 til að setja inn bil.
Ef orðið er ekki rétt skaltu ýta endurtekið á * til að skoða samsvarandi orð sem orðabókin finnur hvert á eftir öðru.
Ef ? birtist aftan við orðið er orðið sem þú vildir slá inn ekki í orðabókinni. Orði er bætt inn í orðabókina með því að velja
Stafa
, slá inn orðið á venjulegan hátt og velja síðan
Í lagi
. Þá er orðinu bætt inn í orðabókina. Þegar orðabókin er orðin full
er elsta orðinu sem var sett inn í hana skipt út fyrir nýjasta orðið.
4. Þá er hafist handa við ritun næsta orðs.
Ábending: Hægt er að kveikja eða slökkva á flýtirituninni með því að ýta tvisvar sinnum snöggt á # takkann.
Sláðu inn fyrri hluta samsetts orðs og staðfestu það með því að fletta til hægri. Sláðu inn seinni hluta orðsins. Ýttu á 0 til að
klára samsetta orðið og bæta við bili.
Til að slökkva á flýtiritun fyrir alla textaritla tækisins ýtirðu á ritfærslutakkann og velur
Flýtiritun
>
Slökkt á flýtiritun
.