Valmynd
Valmynd
er upphafsstaður þaðan sem þú getur opnað öll forrit í tækinu eða á minniskorti.
Valmynd
inniheldur forrit og möppur,
þar sem er að finna forrit af svipaðri gerð. Notaðu skruntakkann til að fletta upp og niður á skjánum.
Forrit sem þú setur upp eru sjálfkrafa vistuð í möppunni
Uppsetn.
.
Forrit er opnað með því að velja það og ýta á skruntakkann.
Til að skoða forritin í lista velurðu
Valkostir
>
Breyta útliti
>
Listi
. Til að fara til baka á töfluskjáinn velurðu
Valkostir
>
Breyta
útliti
>
Tafla
.
Veldu
Valkostir
>
Uppl. um minni
til að sjá hversu mikið minni mismunandi forrit og gögn taka í innra minni tækisins eða á
minniskorti, sem og til að sjá hversu mikið minni er laust.
Til að endurskipuleggja möppuna skaltu fletta að því forriti sem þú vilt færa og velja
Valkostir
>
Færa
. Merki er sett til hliðar
við forritið. Flettu að nýju staðsetningunni og veldu
Í lagi
.
Til að færa forrit í aðra möppu skaltu fletta að forritinu sem þú vilt færa og velja
Valkostir
>
Færa í möppu
, velja svo nýju
möppuna og
Í lagi
.
Til að hlaða niður forritum af vefnum velurðu
Valkostir
>
Hlaða niður forritum
.
Veldu
Valkostir
>
Ný mappa
til að búa til nýja möppu. Ekki er hægt að búa til möppur inni í möppum.
Veldu
Valkostir
>
Endurnefna
til að gefa nýrri möppu heiti.
Ábending: Hægt er að skipta á milli opinna forrita með því að halda valmyndartakkanum inni. Þá opnast skiptigluggi
þar sem sjá má þau forrit sem eru opin. Veldu forrit og ýttu á skruntakkann til að skipta yfir í það.