Tenging við rás
Tengst er við rás með því að velja
Valkostir
>
Kallkerfisrásir
. Veldu rásina sem þú vilt tala við og ýttu á kallkerfistakkann. Mundu
að halda tækinu framan við þig í kallkerfissímtali þannig að þú sjáir á skjáinn. Skjárinn sýnir hvenær komið er að þér að tala.
Talaðu í hljóðnemann og vertu ekki með hendurnar fyrir hátalaranum. Ýttu á kallkerfistakkann og haltu honum inni á meðan
þú talar. Slepptu takkanum þegar þú ert búinn að tala.
Til að skipta á milli rása í mörgum símtölum velurðu
Víxla
. Virka rásin er auðkennd.
Til að skoða virka þátttakendur í rás velurðu
Valkostir
>
Virkir meðlimir
.
Til að bjóða þátttakanda í rás skaltu velja
Valkostir
>
Senda boð
.