Nokia E65 - Netsímtöl

background image

Netsímtöl

Með netsímaþjónustunni (sérþjónusta) er hægt að hringja og svara símtölum um internetið.
Tækið styður símtöl um internetið (netsímtöl). Tækið reynir fyrst og fremst að koma á neyðarsímtölum í farsímakerfum. Ef

neyðarsímtal tekst ekki í farsímakerfi reynir tækið neyðarsímtal um þjónustuveitu netsímtala. Vegna þeirrar útbreiðslu sem

farsímatækni hefur náð skal nota farsímakerfi fyrir neyðarsímtöl þar sem það er hægt. Ef farsíminn er innan þjónustusvæðis

skal ganga úr skugga um að kveikt sé á honum og að hægt sé að hringja áður en reynt er að hringja neyðarsímtal. Möguleikinn

á neyðarsímtölum um internetið fer eftir tiltækni þráðlauss staðarnets og því hvort þjónustuveitan hafi sett símann upp fyrir

slík símtöl. Nánari upplýsingar um neyðarsímtöl um internetið fást hjá þjónustuveitu netsímtala.
VoIP-tækni (Voice over internet Protocol) eru samskiptareglur sem auðvelda símtöl yfir IP-net, eins og internetið. Hægt er að

koma á VoIP-símtölum á milli tölva, milli farsíma og milli VoIP-tækja og venjulegs síma. Til að hringja eða taka við VoIP-símtali

verður tækið þitt að vera innan WLAN-svæðis.
Mismunandi er hvort þjónustan sé í boði eftir löndum eða svæðum.