Nokia E65 - Skilaboð

background image

Skilaboð

Veldu

Valmynd

>

Skilaboð

.

Í

Skilaboð

(sérþjónusta), geturðu sent og tekið við textaskilaboðum, margmiðlunarskilaboðum og tölvupóstskeytum. Einnig er

hægt að taka við vefþjónustuboðum, skilaboðum frá endurvarpa, sérstökum skilaboðum sem innihalda gögn, og senda

þjónustuskipanir.
Áður en þú getur sent eða tekið á móti skilaboðum gætir þú þurft að gera eftirfarandi:
• Setja gilt SIM-kort í tækið og vera innan þjónustusvæðis.
• Ganga úr skugga um að símkerfið styðji þá gerð skilaboða sem á að senda og að opnað hafi verið fyrir þau á SIM-kortinu.
• Færa inn stillingar fyrir internetaðgangsstað (IAP) í tækinu.

Sjá „Aðgangsstaðir“, bls. 77.

• Færa inn stillingar fyrir tölvupóst í tækinu.

Sjá „Stillingar pósthólfa“, bls. 51.

• Færa inn stillingar fyrir SMS í tækinu.

Sjá „Stillingar textaboða“, bls. 50.

• Færa inn stillingar fyrir MMS í tækinu.

Sjá „Stillingar margmiðlunarskilaboða“, bls. 50.

Verið getur að tækið beri kennsl á söluaðila SIM-kortsins og færi sjálfkrafa inn ákveðnar stillingar fyrir skilaboð. Ef svo er ekki

gætir þú þurft að færa stillingarnar inn handvirkt eða leita til þjónustuaðila, símafyrirtækisins eða netveitunnar.
Skilaboð og gögn sem berast um Bluetooth eða innrauða tengingu eru vistuð í möppunni

Innhólf

. Tölvupóstskeyti eru vistuð í

pósthólfi. Hægt er að vista skrifuð skilaboð í möppunni

Uppköst

. Skilaboð sem bíða sendingar eru vistuð í möppunni

Úthólf

og

skilaboð sem hafa verið send, fyrir utan þau sem send eru um Bluetooth og innrauða tengingu, eru vistuð í möppunni

Sendir

hlutir

. Til að skipuleggja skilaboðin þín geturðu búið til þínar eigin möppur í

Mínar möppur

.

Ábending: Skilaboð eru sett í

Úthólf

þegar tækið er t.d. utan þjónustusvæðis. Þú getur einnig beðið um að

tölvupóstskeyti verði send næst þegar þú tengist við ytra pósthólf.