Nokia E65 - Stillingar pósthólfa

background image

Stillingar pósthólfa

Veldu

Valmynd

>

Skilaboð

>

Valkostir

>

Stillingar

>

Tölvupóstur

.

Ef þú hefur ekki tilgreint pósthólf ennþá skaltu velja

Pósthólf í notkun

og ýta á skruntakkann. Pósthólfsleiðbeiningar opnast

með aðstoð við uppsetningu.
Ef þú hefur tilgreint pósthólf skaltu velja það og ýta á skruntakkann til að breyta stillingum þess.
Mismunandi getur verið hvaða stillingar eru í boði. Sumar stillingar kunna að vera forstilltar af þjónustuveitunni.
Stillingar fyrir móttekinn tölvupóst
Veldu

Móttekinn póstur

og svo einhverja af eftirfarandi stillingum:

Notandanafn

— Sláðu inn notandanafn fyrir tölvupóstþjónustuna.

Lykilorð

— Sláðu inn lykilorð fyrir tölvupóstþjónustuna.

Miðlari fyrir innpóst

— Sláðu inn IP-tölu eða heiti miðlarans sem tekur við tölvupóstinum þínum.

Aðg.staður í notkun

— Veldu internetaðgangsstaðinn sem tækið notar til að sækja tölvupóst.

Nafn pósthólfs

— Færðu inn heiti fyrir pósthólfið.

Tegund pósthólfs

— Veldu samskiptareglur fyrir tölvupóst sem þjónustuveita ytra pósthólfsins mælir með. Valkostirnir eru

POP3

og

IMAP4

. Þessa stillingu er aðeins hægt að velja einu sinni og þú getur ekki breytt henni eftir að þú hefur vistað eða

farið út úr stillingum pósthólfs. Ef þú notar POP3-samskiptareglur er tölvupóstur ekki uppfærður sjálfkrafa þegar tækið er

tengt við netið. Til að sjá nýjasta tölvupóstinn þarftu að aftengjast við pósthólfið og tengjast svo aftur.

Öryggi (gáttir)

— Veldu öryggisvalkostinn sem er notaður til að tryggja öryggi tengingarinnar.

Gátt

— Veldu gátt fyrir tenginguna.

Örugg APOP-innskr.

(aðeins fyrir POP3) — Notaðu POP3-samskiptareglur til að dulkóða sendingu lykilorða til ytri

tölvupóstþjóns meðan tengst er við pósthólfið.

Stillingar fyrir sendan tölvupóst
Veldu

Sendur póstur

og svo einhverja af eftirfarandi stillingum:

Tölvupóstfangið mitt

— Sláðu inn tölvupóstfangið sem þjónustuveitan lét þér í té. Öll svör við skeytunum þínum eru send á

það tölvupóstfang.

Notandanafn

— Sláðu inn notandanafn fyrir tölvupóstþjónustuna.

Lykilorð

— Sláðu inn lykilorð fyrir tölvupóstþjónustuna.

Miðlari fyrir útpóst

— Sláðu inn IP-tölu eða heiti póstþjónsins sem sendir tölvupóstinn þinn. Verið getur að þú getir eingöngu

notað útleiðarmiðlara símafyrirtækisins þíns. Nánari upplýsingar fást hjá þjónustuveitunni.

Aðg.staður í notkun

— Veldu internetaðgangsstaðinn sem tækið notar til að senda tölvupóst.

Öryggi (gáttir)

— Veldu öryggisvalkostinn sem nota á til að tryggja öryggi tengingarinnar við ytra pósthólfið.

Gátt

— Veldu gátt fyrir tenginguna.