Spjall
Veldu
Valmynd
>
Tenging
>
Spjall
.
Spjallið (sérþjónusta) gerir þér kleift að hafa samband við annað fólk með því að nota spjallskilaboð og taka þátt í umræðuhópum
(spjallhópum) þar sem rætt er um ákveðin málefni. Þjónustuveitur halda úti spjallmiðlurum sem þú getur skráð þig inn á þegar
þú hefur gerst áskrifandi að þjónustunni. Mismunandi er hvaða aðgerðir þjónustuveitur styðja.
Ef spjall er ekki í boði hjá þjónustuveitunni er ekki víst að það birtist í valmynd tækisins. Hafðu samband við þjónustuveituna
til að fá nánari upplýsingar um áskrift að spjalli og gjaldskrá. Nánari upplýsingar um mögulegar spjallstillingar fást hjá
símafyrirtækinu þínu, þjónustuveitunni eða söluaðila.
Stillingarnar kunna að berast í sérstökum textaskilaboðum frá símafyrirtækinu eða þjónustuveitunni sem býður upp á
spjallþjónustuna. Þú verður að vista stillingarnar til að fá aðgang að þjónustunni sem þú vilt nota. Einnig er hægt að slá
stillingarnar inn handvirkt.