Spjallhópar
Á skjánum
Spjallhópar
birtist listi yfir spjallhópa sem þú hefur vistað eða ert í þessa stundina.
Spjallhópar
eru aðeins tiltækir ef þú skráðir þig inn á spjallmiðlara þegar spjallforritið var opnað og miðlarinn styður spjallhópa.
Til að búa til spjallhóp skaltu velja
Valkostir
>
Búa til nýjan hóp
.
Til að ganga í spjallhóp eða halda áfram hópspjalli skaltu fletta að hópnum og ýta á skruntakkann. Skrifaðu skilaboðin og ýttu
á hringitakkann til að senda þau.
Til að taka þátt í spjallhópi sem er ekki á listanum en þú veist hópkennið á skaltu velja
Valkostir
>
Ganga í nýjan hóp
.
Til að hætta í spjallhópi skaltu velja
Valkostir
>
Yfirgefa spjallhóp
.
Einnig er hægt að velja
Valkostir
og eitthvað af eftirfarandi:
•
Hópur
— Veldu
Vista
til að bæta hópnum við spjallhópana þína eða
Skoða þátttakendur
til að skoða þá tengiliði sem þegar
eru í hópnum, eða
Stillingar
til að breyta stillingum hópsins. Þú getur aðeins valið þennan valkost ef þú hefur ritstjórnarréttindi
að hópnum.
•
Innskráning
— Til að tengjast við spjallmiðlara ef forritið skráði þig ekki inn þegar það var ræst.
•
Útskráning
— Til að aftengjast við spjallmiðlarann.
•
Stillingar
— Til að breyta stillingum spjallforritsins eða miðlarans.