Nokia E65 - Tölvupóstur lesinn og honum svarað

background image

Tölvupóstur lesinn og honum svarað

Mikilvægt: Fara skal með gát þegar skilaboð eru opnuð. Tölvupóstboð geta innihaldið skaðlegan hugbúnað eða skaðað

tölvuna eða tækið á einhvern annan hátt.

Til að lesa móttekinn tölvupóst skaltu fletta að honum og ýta á skruntakkann.
Leitað er að tilteknu tölvupóstskeyti í pósthólfi með því að velja

Valkostir

>

Finna

. Sláðu inn leitarstrenginn og veldu

Í lagi

.

Til að opna viðhengið velurðu

Valkostir

>

Viðhengi

. Flettu að viðhenginu og ýttu á skruntakkann.

Til að svara sendanda skaltu opna tölvupóstinn og velja

Valkostir

>

Svara

>

Til sendanda

.

Til að senda svar til allra viðtakenda tölvupósts skaltu opna tölvupóstinn og velja

Valkostir

>

Svara

>

Til allra

.

Til að eyða viðhengi úr tölvupóstinum sem þú ert að senda skaltu velja viðhengið og svo

Valkostir

>

Fjarlægja

.

Ábending: Ef þú svarar tölvupósti sem inniheldur skrár sem viðhengi þá fylgja viðhengin ekki sjálfkrafa með svarinu.

Ef þú framsendir móttekinn tölvupóst eru viðhengin sjálfkrafa send með honum.

Til að stilla forgang tölvupóst velurðu

Valkostir

>

Sendikostir

>

Forgangur

og úr þeim valkostum sem standa til boða.

Til að hringja í sendanda skaltu opna tölvupóstinn og velja

Valkostir

>

Hringja

.

Til að svara sendanda tölvupóst með texta- eða margmiðlunarskilaboðum skaltu opna tölvupóstinn og velja

Valkostir

>

Búa

til skilaboð

.

Til að framsenda tölvupóst skaltu opna hann og velja

Valkostir

>

Framsenda

.