
Stillingar
Veldu
Valmynd
>
Verkfæri
>
Stillingar
.
Þú getur tilgreint og breytt ýmsum stillingum í tækinu. Breytingar á þessum stillingum hafa áhrif á nokkur forrit tækisins.
Sumar stillingar kunna að vera forstilltar í tækinu eða fengnar með stillingaskilaboðum frá símafyrirtækinu eða
þjónustuveitunni. Ekki er víst að hægt sé að breyta slíkum stillingum.
Flettu að stillingum sem þú vilt breyta og ýttu á skruntakkann til að gera eftirfarandi:
• Skipta á milli tveggja gilda, eins og á eða af.
• Velja gildi af lista.
• Opna textaritil til að slá inn gildi.
• Opna rennistiku og auka eða minnka gildi með því að fletta til vinstri eða hægri.