Nokia E65 - Tengi­stillingar

background image

Tengistillingar

Veldu

Valmynd

>

Verkfæri

>

Stillingar

>

Samband

og svo úr eftirfarandi:

Aðgangsstaðir

— Settu upp nýja aðgangsstaði eða breyttu þeim sem fyrir eru. Sumir eða allir aðgangsstaðir gætu verið

forstilltir í tækinu af þjónustuveitunni og því er ekki víst að hægt sé að búa til, breyta eða fjarlægja aðgangsstaði.

Aðgangsstaðahópar

— Settu upp nýja aðgangsstaðahópa eða breyttu þeim sem fyrir eru þegar komið er sjálfkrafa á tengingu

og tölvupóstreiki.

Pakkagögn

— Ákveddu hvenær pakkagagnatengingar eru notaðar og sláðu inn aðgangsstaðinn ef þú notar tækið sem mótald

fyrir tölvu.

Stillingar internetsíma

— Tilgreindu stillingar fyrir netsímtöl.

SIP-stillingar

— Skoðaðu eða búðu til snið fyrir SIP-vistföng (session initiation protocol).

Gagnasímtal

— Stilltu biðtímann sem líður þar til gagnasímtalstengingu lýkur sjálfkrafa.

VPN

— Settu upp og stjórnaðu VPN-stefnum, haltu utan um miðlara fyrir VPN-stefnur, skoðaðu notkunarskrá VPN og stjórnaðu

VPN-aðgangsstöðum.

Þráðlaust staðarnet

— Ákveddu hvort tækið birti vísi þegar þráðlaust staðarnet er tiltækt og hversu oft tækið leiti að netum.

Samskipanir

— Skoðaðu og eyddu öruggum miðlurum sem tækið getur fengið stillingar frá.

Til að fá upplýsingar um þráðlaust staðarnet eða áskrift að pakkagagnaþjónustu og réttar tengistillingar og aðrar stillingar

skaltu hafa samband við símafyrirtækið eða þjónustuveituna.
Mismunandi getur verið hvaða stillingar eru í boði.