Minniskorti komið fyrir
Aðeins skal nota samhæft microSD kort sem Nokia hefur samþykkt til notkunar með þessu tæki. Nokia styðst við viðurkennda
staðla fyrir minniskort. Þó getur verið að sum kort sé ekki hægt að nota að fullu með þessu tæki. Ósamhæf kort geta skaðað
kortið og tækið og skemmt gögn sem vistuð eru á kortinu.
Notaðu minniskort til að spara minni tækisins. Einnig er hægt að taka afrit af upplýsingunum í tækinu og vista þær á
minniskortinu. Öll minniskort skal geyma þar sem börn ná ekki til.
Ekki er víst að sölupakkning tækisins innihaldi minniskort. Hægt er að fá minniskort sem aukahlut.
Sjá „Minni“, bls. 19.
1. Fjarlægðu bakhliðina.
2. Settu minniskortið í raufina. Gakktu úr skugga um að snertiflötur kortsins vísi að framhlið tækisins.
3. Ýttu kortinu inn. Smellur heyrist þegar kortið fellur á sinn stað.
4. Settu rafhlöðulokið aftur á sinn stað.