Tökkunum læst
Þegar takkarnir eru læstir kann að vera hægt að hringja í opinbera neyðarnúmerið sem er forritað í tækið.
Læstu tökkunum til að koma í veg fyrir að eitthvað gerist ef ýtt er óvart á þá.
Hægt er að læsa tökkunum í biðstöðu með því að loka tækinu og velja
Já
þegar textinn
Læsa tökkum?
birtist. Þegar tækið er
lokað er tökkunum læst með því að ýta á rofann og velja
Læsa tökkum
. Takkarnir eru opnaðir með því að opna tækið eða ýta
á vinstri valtakkann og svo á *.
Ábending: Til að læsa tökkunum í
Valmynd
eða opnu forriti skaltu ýta snöggt á rofann og velja
Læsa tökkum
. Takkarnir
eru opnaðir með því að opna tækið eða ýta á vinstri valtakkann og svo á *.
Þegar tækið er læst kann að vera hægt að hringja í opinbera neyðarnúmerið sem er forritað í tækið. Einnig er hægt að læsa
tækinu í biðstöðu með læsingarnúmerinu. Ýttu á rofann, veldu
Læsa síma
og sláðu inn læsingarnúmerið. Sjálfgefna
læsingarnúmerið er 12345. Til að opna tækið ýtirðu á vinstri valtakkann, slærð inn læsingarnúmerið og ýtir á skruntakkann.