Unnið með tengiliðahópa
Búðu til tengiliðahóp þannig að þú getir sent SMS eða tölvupóst til margra viðtakenda í einu.
1. Flettu til hægri og veldu
Valkostir
>
Nýr hópur
.
2. Sláðu inn heiti fyrir hópinn eða notaðu sjálfgefna heitið og veldu
Í lagi
.
3. Opnaðu hópinn og veldu
Valkostir
>
Bæta félögum við
.
4. Flettu að hverjum þeim tengilið sem þú vilt bæta við hópinn og ýttu á skruntakkann til að merkja hann.
5. Veldu
Í lagi
til að bæta öllum merktum tengiliðum við hópinn.
Eftirfarandi valkostir standa til boða þegar þú velur
Valkostir
á skjánum með tengiliðahópunum:
•
Kallkerfisvalkostir
— Komdu á kallkerfissímtali við einstakling eða hóp, eða sendu beiðni um að hringt verði í þig.
•
Opna
— Opnaðu tengiliðahópinn og skoðaðu meðlimi hópsins.
•
Búa til skilaboð
— Sendu skilaboð.
•
Nýr hópur
— Búðu til nýjan tengiliðahóp.
•
Eyða
— Eyddu tengiliðahóp.
•
Endurnefna
— Gefðu tengiliðahópnum annað heiti.
•
Hringitónn
— Tengdu ákveðinn hringitón við tengiliðahóp.
•
Upplýs. um tengiliði
— Skoðaðu upplýsingar um tiltekinn tengiliðahóp.
•
Stillingar
— Stilltu hvernig nöfn meðlima í hópnum birtast á skjánum.
Til þess að fjarlægja tengilið úr tengiliðahóp skaltu opna hópinn. Flettu að tengiliðnum sem þú vilt fjarlægja og veldu
Valkostir
>
Fjarlægja úr hópi
>
Já
.
Ábending: Til að kanna hvaða hópi tengiliður tilheyrir ýtirðu á tengiliðatakkann. Flettu að tengiliðnum og veldu
Valkostir
>
Tilheyrir hópum
.
Til þess að skoða eða breyta tengilið í tengiliðahópi skaltu opna hópinn. Flettu að tengiliðnum sem á að skoða eða breyta og
veldu
Valkostir
. Veldu úr eftirfarandi valkostum:
Opna
Tengiliðaspjaldið er opnað og upplýsingar um tengiliðinn birtar.
Hringja
Veldu
Símtal
eða
Myndsímtal
og hringdu í tengiliðinn.
Búa til skilaboð
Búðu til og sendu textaskilaboð eða
margmiðlunaskilaboð til tengiliðarins.
Fjarlægja úr hópi
Fjarlægðu tengiliðinn úr tengiliðahópnum.
Tilheyrir hópum
Skoðaðu
alla hópa sem tengiliðurinn tilheyrir.