
Gögn send
Hægt er að hafa fleiri en eina Bluetooth-tengingu virka í einu. Til dæmis er hægt að flytja skrár úr tækinu þó að það sé tengt
við höfuðtól.
1. Opnaðu forritið sem geymir hlutinn sem þú vilt senda.
2. Veldu hlutinn og svo
Valkostir
>
Senda
>
Með Bluetooth
. Tækið leitar að Bluetooth-tækjum innan svæðisins og birtir þau
í lista.
Ábending: Ef gögn hafa áður verið send um Bluetooth birtist listi með fyrri leitarniðurstöðum. Leitað er að fleiri
Bluetooth-tækjum innan svæðisins með því að velja
Fleiri tæki
.
3. Veldu tækið sem á að tengjast við og ýttu á skruntakkann til að setja upp tenginguna. Ef hitt tækið fer fram á pörun áður en
hægt er að flytja gögn er beðið um aðgangskóða.
4. Textinn
Sendi gögn
birtist þegar tengingunni hefur verið komið á.
Skilaboð sem hafa verið send um Bluetooth eru ekki vistuð í
Sendir hlutir
möppunni í
Skilaboð
.
Ef hlutir hafa áður verið sendir með Bluetooth birtist listi með fyrri leitarniðurstöðum. Leitað er að fleiri Bluetooth-tækjum innan
svæðisins með því að velja
Fleiri tæki
.
Til að nota Bluetooth-hljóðaukahlut, t.d. handfrjálsan Bluetooth-búnað eða höfuðtól, þarf að para tækið við aukahlutinn. Lykilorð
aukahlutarins og nánari upplýsingar er að finna í notendahandbók hans. Ýttu á rofann til að kveikja á aukahlutnum og tengja
hann. Sumir hljóðaukahlutir tengjast sjálfkrafa við tækið. Ef það gerist ekki skaltu opna
Pöruð tæki
, fletta að aukahlutnum og
velja
Valkostir
>
Tengjast
.
T e n g i n g a r
© 2007 Nokia. Öll réttindi áskilin.
59