Sjá „Tæki heimilað“, bls. 60.
Með því að para saman tæki og heimila tenginguna
verður fljótlegra að koma á tengingu þar sem ekki þarf að samþykkja tengingu á milli paraðra tækja í hvert skipti sem henni er
komið á.
Lykilorð fyrir ytri SIM-aðgang verður að vera 16 tölustafir.
1. Veldu
Valkostir
>
Nýtt parað tæki
. Tækið byrjar þá að leita að Bluetooth-tækjum á svæðinu.
Ábending: Ef gögn hafa áður verið send um Bluetooth birtist listi með fyrri leitarniðurstöðum. Leitað er að fleiri
Bluetooth-tækjum innan svæðisins með því að velja
Fleiri tæki
.
2. Veldu tækið sem para á tækið þitt við og sláðu inn lykilorðið. Slá verður inn sama lykilorð í hitt tækið.
3. Veldu
Já
til að koma alltaf sjálfkrafa á tengingu milli tækisins þíns og annars tækis, og
Nei
ef þú vilt staðfesta tenginguna í
hvert skipti sem tækin reyna að tengjast. Eftir pörunina er tækið vistað á síðu paraðra tækja.
Til að gefa pöruðu tæki gælunafn sem sést aðeins í tækinu þínu skaltu fletta að paraða tækinu og velja
Valkostir
>
Gefa
stuttnefni
.
Pörun er eytt með því að velja hana og svo
Valkostir
>
Eyða
. Til að eyða öllum pörunum velurðu
Valkostir
>
Eyða öllum
.
Ábending: Ef tækið er tengt við annað tæki og pöruninni við það er eytt, er pörunin fjarlægð strax og slökkt er á
tengingunni.
Tæki heimilað
Ef þú treystir pöruðu tæki geturðu leyft því að tengjast sjálfkrafa við tækið þitt. Hægt er að velja úr eftirfarandi valkostum:
•
Stilla sem heimilað
— Hægt er að koma á tengingu á milli tækisins þíns og hins tækisins án vitneskju þinnar. Til þess þarf
hvorki samþykkt né leyfi. Notaðu þessu stöðu fyrir þín eigin tæki, líkt og höfuðtól eða tölvu, og tæki þeirra sem þú þekkir og
treystir.
•
Stilla sem óheimilað
— Samþykkja þarf allar beiðnir um tengingu við tækið.