SIM-aðgangssnið
Þegar ytri SIM-stilling er virk í þráðlausa tækinu er aðeins hægt að hringja og svara símtölum með samhæfum aukahlut sem er
tengdur við það (t.d. bílbúnaði). Ekki er hægt að hringja úr þráðlausa tækinu þegar stillingin er virk, nema í neyðarnúmerið sem
er forritað í tækið. Eigi að hringja úr tækinu þarf fyrst að slökkva á ytri SIM-stillingu. Ef tækinu hefur verið læst skal fyrst slá inn
lykilnúmerið til að opna það.
Með SIM-aðgangssniðinu getur þú komist inn á SIM-kortið í tækinu þínu úr samhæfu bílbúnaðartæki. Þannig þarftu ekki auka
SIM-kort til að komast í upplýsingar á SIM-kortinu og tengjast við GSM-símkerfi.
Til að nota SIM-aðgangssniðið þarftu eftirfarandi:
• Samhæfan bílbúnaðartæki sem styður þráðlausa Bluetooth-tækni
• Gilt SIM-kort í tækið þitt
Nánari upplýsingar um bílbúnað og samhæfni við tækið þitt má finna á www.nokia.com og í notendahandbókinni fyrir
bílbúnaðinn.
T e n g i n g a r
© 2007 Nokia. Öll réttindi áskilin.
60
Unnið með SIM-aðgangssniðið
1. Veldu
Valmynd
>
Tenging
>
Bluetooth
til að virkja Bluetooth-tengingu í tækinu þínu.
2. Til að gera ytri aðgang að SIM-korti virkan skaltu fletta að
Ytra SIM
og ýta á skruntakkann.
3. Gerðu Bluetooth virkt í bílbúnaðartækinu.
4. Notaðu bílbúnaðartækið til að hefja leit að samhæfum tækjum. Leiðbeiningar er að finna í notendahandbók
bílbúnaðartækisins.
5. Veldu tækið þitt úr lista yfir samhæf tæki.
6. Sláðu aðgangskóða Bluetooth sem sýndur er á skjá bílbúnaðartækisins inn í tækið þitt til að para tækin.
7. Heimilaðu bílbúnaðartækið. Veldu
Valmynd
>
Tenging
>
Bluetooth
og flettu að síðunni
Pöruð tæki
. Flettu að
bílbúnaðartækinu og sláðu inn aðgangskóða Bluetooth. Þegar tækið fer fram á að gera tenginguna sjálfvirka skaltu velja
Já
. Tengingu milli tækisins þíns og bílbúnaðartækisins er hægt að koma á án samþykkis eða leyfis. Ef þú velur
Nei
verðurðu
að samþykkja beiðnir um tengingu frá tækinu í hvert skipti.
Ábending: Ef þú hefur þegar farið inn á SIM-kortið úr bílbúnaðartækinu með virka notandasniðinu leitar
bílbúnaðartækið sjálfkrafa að tækinu með því SIM-korti. Ef það finnur tækið þitt og virkjar leyfið sjálfvirkt tengist
bílbúnaðartækið sjálfkrafa GSM-símkerfinu þegar þú ræsir bílinn.
Þegar snið fyrir ytri aðgang að SIM-korti hefur verið virkjað getur þú notað forrit á tækinu þínu sem þurfa ekki á símkerfis- eða
SIM-þjónustu að halda.
Til að ljúka ytri SIM-aðgangstengingunni úr tækinu þínu velurðu
Valmynd
>
Tenging
>
Bluetooth
>
Ytra SIM
>
Slökkt
.