Snúrutenging
Setja þarf upp rekilinn fyrir USB-gagnasnúruna á tölvunni áður en hægt er að tengjast við tölvuna um hana. Hægt er að nota
Gagnaflutningur
án þess að setja upp reklana fyrir USB-snúruna.
Veldu
Valmynd
>
Tenging
>
Gagnasn.
.
Hægt er að tengja tækið við samhæfa tölvu með USB-snúru. Tengdu USB-snúruna neðan í tækið. Ýttu á skruntakkann til að
breyta gerð tækisins sem þú tengir vanalega við tækið þitt með gagnasnúrunni.
Veldu úr eftirfarandi:
•
Spyrja við tengingu
— Veldu hvort spyrja eigi um gerð tækisins í hvert skipti sem gagnasnúran er tengd við tækið.
•
PC Suite
— Til að tengja PC Suite við tækið með gagnasnúrunni, eða til að nota tækið sem mótald.
•
Gagnaflutningur
— Til að flytja gögn úr tölvunni (t.d. tónlist eða myndaskrár) með gagnasnúrunni. USB má ekki vera valið
sem gerð tengingar í tengistillingunum Nokia PC Suite þegar á að nota
Gagnaflutningur
. Settu minniskort í tækið, tengdu
tækið við samhæfa tölvu með USB-snúrunni og veldu svo
Gagnaflutningur
þegar tækið spyr hvaða stillingu eigi að nota. Í
þessari stillingu gegnir tækið þitt hlutverki gagnageymslutækis og birtist sem utanáliggjandi harður diskur í tölvunni. Tækið
skiptir yfir í sniðið
Ótengdur
ef þetta er valið. Slíta skal tengingunni í tölvunni (til dæmis með viðeigandi hjálparforriti í
Windows) til að skemma ekki minniskortið. Eftir að tengingin er rofin notar tækið sama snið og var notað áður en stillt var
á gagnaflutning.