Aðgangsstaðir
Til að hægt sé að skoða vefsíður þarftu að færa inn stillingar fyrir internetaðgangsstað. Ef þú notar gagnasímtöl eða GPRS-
tengingu verður þráðlausa netið þitt að styðja slíkt. Að auki verður að vera búið að opna fyrir gagnaþjónustuna á SIM-kortinu
þínu. Hugsanlega hefur tækið fært inn stillingar fyrir internetaðgangsstað sjálfkrafa út frá upplýsingum á SIM-kortinu. Ef ekki
getur þjónustuveitan þín gefið þér upp réttar stillingar.
Ábending: Einnig er hægt að fá stillingar fyrir internetaðgangsstað sendar í sérstökum textaskilaboðum frá
þjónustuveitu eða nálgast þær á vefsíðum símafyrirtækisins eða þjónustuveitunnar.
Þú getur einnig slegið inn stillingarnar handvirkt.
Sjá „Netaðgangsstaðir“, bls. 57.