Leiðsögn
GPS-kerfið (Global Positioning System) er rekið af Bandaríkjastjórn sem ber alla ábyrgð á nákvæmni þess og viðhaldi. Nákvæmni
staðsetningargagna kann að verða fyrir áhrifum af breytingum á GPS-gervihnöttum sem gerðar eru af Bandaríkjastjórn og kann
að breytast í samræmi við stefnu varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna um borgaralegt GPS og alríkisáætlun um þráðlausa
leiðsögu. Slæm rúmfræði gervihnatta getur einnig haft áhrif á nákvæmni. Staðsetning, byggingar, náttúrulegar hindranir auk
veðurskilyrða kunna að hafa áhrif á móttöku og gæði GPS-merkja. Aðeins ætti að nota GPS-móttakarann utanhúss til að taka á
móti GPS-merkjum.
Aðeins ætti að nota GPS sem aðstoð við leiðsögu. Ekki ætti að nota það fyrir nákvæmar staðsetningarmælingar og aldrei ætti
að treysta eingöngu á staðsetningargögn GPS-móttakarans.
Áreiðanleiki áfangamælisins er ekki fullkominn og sléttunarvillur eru mögulegar. Nákvæmnin veltur einnig á móttöku og gæðum
GPS-merkja.
Veldu
Valmynd
>
Verkfæri
>
Leiðsögn
.
Leiðsögn
er GPS-forrit sem er notað til að fá upplýsingar um núverandi staðsetningu, bestu leið að ákvörðunarstað og vegalengd.
Hnitin eru sýnd í gráðum og tugabrotsgráðum með WGS-84 hnitakerfinu.
Forritið virkar aðeins með Bluetooth GPS aukabúnaði. Einnig þarf Bluetooth GPS staðsetningaraðferðin að vera virk í
Valmynd
>
Verkfæri
>
Staðsetn.
.
Til að hægt sé að nota forritið þarf það að fá upplýsingar um staðsetningu frá minnst þremur gervitunglum.
Veldu úr eftirfarandi:
•
Leiðsögn
— til að fá leiðsögn að áfangastað.
•
Staða
— til að fá upplýsingar um núverandi staðsetningu.
•
Lengd ferðar
— til að skoða ferðaupplýsingar, s.s. vegalengd, ferðartíma, meðalhraða og hámarkshraða.