Nokia E65 - Hugbúnaður skoðaður og fjarlægður

background image

Hugbúnaður skoðaður og fjarlægður

Hægt er að skoða upplýsingar um uppsett forrit og fjarlægja þau úr tækinu.
Til að skoða upplýsingar um uppsettan hugbúnaðarpakka skaltu velja forritið og

Valkostir

>

Skoða frekari uppl.

.

Til að fjarlægja hugbúnað opnarðu aðalskjá stjórnanda forrita og velur

Valkostir

>

Fjarlægja

.

Þegar hugbúnaður er fjarlægður er aðeins hægt að setja hann upp aftur með því að nota upprunalegu hugbúnaðarskrána eða

með því að setja upp afrit sem inniheldur allan hugbúnaðarpakkann sem hefur verið fjarlægður. Ef hugbúnaðarpakka er eytt

er ekki víst að hægt sé að opna skrár sem voru búnar til með honum. Ef hugbúnaðarpakkinn sem verið er að fjarlægja hefur

áhrif á annan hugbúnaðarpakka gæti sá pakki hætt að virka. Þú finnur nánari upplýsingar í leiðbeiningunum sem fylgja með

hugbúnaðarpökkum.