Nokia E65 - Vinnuumhverfi

background image

Vinnuumhverfi

Þetta tæki uppfyllir skilyrði um leyfileg mörk útvarpsbylgna (RF) við notkun annað hvort í hefðbundinni stöðu við eyra eða þegar

það er haft að minnst kosti 2,2 sentímetra (7/8 tommur) frá líkamanum. Ef taska, beltisklemma eða hald er notað þegar tækið

er borið á réttan hátt á líkamanum við notkun ætti slíkur búnaður ekki að innihalda málm og halda ætti tækinu að minnsta

kosti í þeirri fjarlægð frá líkamanum sem nefnd var hér á undan.
Til að hægt sé að senda gagnaskrár eða skilaboð þarf þetta tæki góða tengingu við símkerfið. Í sumum tilvikum getur sending

gagna eða boða tafist þar til slík tenging er tiltæk. Tryggja skal að ofangreindum fjarlægðarfyrirmælum sé fylgt þar til sendingu

er lokið.
Hlutar tækisins eru segulmagnaðir. Málmefni gætu dregist að tækinu. Ekki má geyma kreditkort eða aðra segulmagnaða hluti

með geymsluminni nálægt tækinu því upplýsingar sem þar eru geymdar gætu þurrkast út.